Þetta verður stórviðburður! Aldrei fyrr hefur námskeiðið Úr mínus í plús verið haldið í jafnstórum sal og í Háskólabíói. En hvernig kemur það til að námskeiðið verður haldið í 1.000 manna sal? Það er saga að segja frá því.
Atlantsolía hafði tekið frá 100 sæti fyrir notendur dælulykilsins á námskeið Úr mínus í plús sem haldið var í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, síðast liðinn þriðjudag. Þegar Atlantsolía sendi út tilkynningu til viðskiptavina sinna á mánudaginn skráðu sig yfir 1.200 manns! Þetta var eiginlega meira en póstkerfið þeirra þoldi og langt yfir öllum væntingum. Þessi gríðarlegi áhugi á námskeiðinu varð til þess að Atlantsolía og spara.is gerðu með sér samninga um að halda annað námskeið sem yrði frítt fyrir viðskiptavini Atlantsolíu og alla þá sem hefðu áhuga á að fá sér dælulykil hjá þeim. Til þess að tryggja að sem flestir kæmust að í þetta sinn kom ekkert annað til greina en að panta stóra salinn í Háskólabíói, þriðjudaginn 30. mars kl 18:00 – 22:00.
Á námskeiðinu í Háskólabíói verður viðskiptavinum Atlantsolíu kennt að nýta peninga sína enn betur en hingað til, að verða skuldlausir á undraskömmum tíma og spara sér milljónatugi í vexti og verðbætur og að byggja upp sparnað og eignir á sama tíma. Og meira en það, á námskeiðinu verður farið í fjársjóðsleit og kennt hvernig hægt sé að hafa gaman af peningunum með nýju fjárhagskerfi fyrir heimilin, Epli & appelsínum.
Heppnir þátttakendur á námskeiðinu geta unnið fría áfyllingu á bílinn ásamt fleiri flottum vinningum. Þetta verður fróðleikur og skemmtun í senn. Tryggið ykkur sæti með því að bregðast fljótt við og skráið ykkur á
www.atlantsolia.is Þeir sem ekki eru með dælulykil eða eru ekki í viðskiptum við Atlandsolíu ættu ekki að kláta það hindra sig í að koma því að þeir geta einfaldlega fengið lykilinn hjá starfsfólki spara.is sem verða á staðnum eða seinna hjá Atlantsolíu.
Sjáumst í Háskólabíói
Ingólfur H. Ingólfsson