Sparibankinn gæti orðið fjórði stærsti bankinn á fyrsta starfsári!
Vinna við stofnun Sparibankans er á lokastigi en nú stendur yfir vinna við fjármögnun hans. Það eru gömul sannindi og ný að síðustu metrarnir í langhlaupi reynast oftast erfiðastir og fyrir því finnum við.
Við hjá Sparifélaginu hf. (spara.is) fáum margar fyrirspurnir á dag um hvort nýi bankinn sé ekki að koma. Erum við öllum þeim sem hafa haft samband afar þakklát. Við gerðum okkur ekki fyllilega grein fyrir því hvaða væntingar markaðurinn gerði til nýja bankans fyrr en niðurstöður úr viðhorfskönnun Miðlunar ehf, sem gerð var fyrir bankana í desember í fyrra, lágu fyrir. Án þess að við hjá Sparifélaginu vissum, þá var eftirfarandi spurning á spurningalistanum: „Stefnt er að því að nýr íslenskur banki, Sparibankinn, taki til starfa hér á landi eftir ár. Hversu líklegt eða ólíklegt telur þú að þú myndir flytja viðskipti þín til nýja bankans?“ Svörin komu okkur verulega á óvart en voru þó í takti við það sem við skynjuðum í samfélaginu. Hvorki meira né minna en 16% svöruðu öruggt, mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir myndu flytja viðskipti sín í Sparibankann og rúm 29% voru óákveðin. Kæru lesendur, ef til vill áttið þið ykkur ekki á því að þótt þessi niðurstaða gengi ekki eftir nema að hluta til, yrði Sparibankinn fjórði stærsti viðskiptabanki landsins strax á fyrsta starfsári sínu! Þessar niðurstöður fara langt fram úr okkar björtustu vonum og viðskiptaáætlun okkar gerir ekki ráð fyrir nema brotabroti af þessum fjölda viðskiptavina á fyrsta starfsári.
Hinn dæmigerði viðskiptavinur Sparibankans
En hver skyldi hinn dæmigerði viðskiptavinur Sparibankans vera? Úr könnun Miðlunar ehf má lesa að hann er karlmaður, 35 – 49 ára, með 800 – 999 þúsund krónur í mánaðarlegar fjölskyldutekjur, búandi á höfuðborgarsvæðinu með verklega framhaldsmenntun. Þessi lýsing passar afskaplega vel við þær fjölskyldur sem koma í einkaráðagjöf til okkar hjá spara.is – fólk með góða menntun og tekjur yfir meðallagi sem vill ná fjárhagslegri velgegni og láta drauminn um hamingjusamt líf með fjölskyldunni rætast.