Það er búið að setja öll fréttabréfin á netið frá árinu 2006 til dagsins í dag. Það er aðeins eftir að setja upp fréttabréf ársins 2005 og þá eru þau öll komin. Þeir sem hafa lesið eitthvað af þessum gömlu fréttabréfum vita að í þeim var oft tekið á málum með töluvert öðrum hætti en tíðkaðist í almennum fréttamiðlum. Hér er eitt dæmi frá árinu
2006 þar sem fjallað er um yfirvofandi gjaldmiðlakreppu í heiminum og hvatt er til þess að fjárfesta í gulli. Það borgaði sig svo sannarlega að kaupa gull þegar þetta var skrifað því að síðan hefur það hækkað í verði um 260%. Í fréttabréfi sem skrifað er í ársbyrjun
2007 er fjallað um verðbólu á húsnæðis- og verðbréfamarkaði eða, með öðrum orðum, gífurlega skuldsettningu heimila, fyrirtækja og ríkja og því spáð (eða á það giskað) að "... svona í lok ársins 2008, má allt fara til fjandans", eins og segir í pistlinum. Og auðvitað skrifaði ég um lán í erlendri mynt og mælti eindregið með þeim (og geri reyndar enn en þau standa okkur því miður ekki til boða). Ég hef stundum verið gagnrýndur fyrir þessa afstöðu mína til erlendra lántöku en hef svarað þeirri gagnrýni ítarlega til dæmis í þessu fréttabréfi frá árinu
2010 þar sem ég sýni enn og aftur fram á að verðtryggt jafngreiðslulán er dýrasti valkosturinn - dýrara en gengistryggða lánið og það þrátt fyrir gengishrunið.
Það kennir margra grasa í þessum greinum, meðal annars er fjallað um ást og peninga, húsnæði og heimsmál, kenningar og spádóma, skatta og tryggingar, sparnað og uppgreiðslu lána og svo ekki sé minnst á vexti og verðtryggingu. Ég vona að þið hafið nokkuð gaman af því að fletta upp í þessum gömlu pistlum.
Kær kveðja,
Ingólfur H. Ingólfsson