Það er komin út ný útgáfa af Eplum & appelsínum. Það er stöðugt verið að koma með nýjungar og bæta kerfið sem gerir það bæði gagnlegra og skemmtilegra (einhverju sinni sagði ég að markmiðið væri að gera Epli & appelsínur að skemmtilegasta bókhaldskerfi fyrir heimilin sem til væri, og við þetta loforð ætla ég að standa). Helstu breytingar að þessu sinni eru:
Tvær nýjar vísitölur
Þegar komið er inn í Epli & appelsínur er smellt á „Reiknivélar“. Þar er að finna tvær nýjar vísitölusíður. Önnur heitir „Vísitölur“ hin heitir „Vísitala neysluverðs“. Á fyrri síðunni er að finna helstu vísitölur sem skipta máli þegar skoðaðar eru hreyfingar í hagkerfinu. Þar er tildæmis hægt að sjá einkenni um bólumyndanir líkt og varð þegar húsnæðisverð rauk upp úr öllu valdi. Með því að bera saman hlutfallslegar breytingar má sjá að fasteignavísitalan fer að hreyfast nokkuð skarpt upp á við í ársbyrjun 1999 og árið 2004 hefur hún rifið sig lausa frá hinum hagvísunum sem bendir til bólumyndunar sem sprakk svo með látum í ársbyrjun 2008. Á síðunni „Vísitala neysluverðs“ er hægt að skoða breytingar á verðbólgu 20 ár aftur í tímann.
Ávinningur af veltukerfinu frá fyrsta degi
Á forsíðu, strax og komið er inn í Epli & appelsínur, er hægt að skoða útreikning á þeim ávinningi sem maður hefur þegar náð með veltukerfinu eða höfuðstólsgreiðslum. Smellið á litla táknið lengst til hægri, þar sem lánin eru talin upp, eins og nokkur strik ofan á hverju öðru. Þær upplýsingar sem hægt er að sækja eru meðal annars þessar:
• Lækkun á greiðslubyrði ef til dæmis hætt er við höfuðstólsgreiðslur.
• Fjárhæðin sem greidd hefur verið í veltugreiðslur umfram það sem hefði að óbreyttu verið greitt inn á lánið.
• Lækkun eftirstöðva miðað við upphaflegt greiðsluflæði.
• Hversu mikið hefur áunnist nú þegar, þ.e. hve mikið höfuðstóllinn hefur lækkað umfram aukagreiðslur.
• Hversu mikill heildarávinningur af veltugreiðslum er áætlaður til loka lánsins.
Þessar upplýsingar eru afar hvetjandi og sýna svart á hvítu hver ávinningurinn er af veltukerfinu strax við fyrstu höfuðstólsgreiðslu og síðan í hverjum mánuði upp frá því.
Áskriftartilboð að Eplum & appelsínum fyrir lesendur fréttabréfs spara.is
Fréttabréf spara.is er sent frítt til áskrifenda og hefur verið gert frá árinu 2005 að þau fóru fyrst að birtast í tengslum við námskeiðin "Úr mínus í plús". Í tilefni af nýrri útgáfu af fjárhagskerfi heimilisins Eplum & appelsínum fá áskrifendur fréttabréfsins aðgang að kerfinu fyrir
kr 960 á mánuði í stað
kr 1.690. Auk þess fá þeir alltaf
hæsta hópafslátt hjá Orkunni/Shell,
bókhaldsmöppu til þess að raða skipulega öllum reikningum, kvittunum og samningum,
handbók með öllum notkunarmöguleikum og
frítt kennslunámskeið í Eplum & appelsínum. Þeir sem vilja njóta afsláttarins að Eplum & appelsínum geta gerst áskrifendur að fríu fréttabréfi spara.is með því einfaldlega að skrá netfangið sitt þar sem stendur "Fréttabréf" neðst til hægri á forsíðunni
www.spara.is .
Njótið vel.
Kær kveðja,
Ingólfur H. Ingólfsson