Lesa

Nýtt fjárhagskerfi fyrir heimilið

Leiðrétt fréttabréf Nr 2 2010

ATHUGASEMD:
Mér urðu á þau slæmu mistök að senda út drög að fréttabréfi þann 20. janúar en hér kemur það loksins fullskapað. Ég bið ykkur afsökunar á fljótfærninni og vona að fréttirnar verði bara ánægjulegri þegar þær loksins skila sér óbrenglaðar.


Uppfærsla á fjárhagskerfi heimilisins

Fimmtudaginn 21. janúar var Fjárhagskerfi heimilisins uppfært og gögn áskrifenda færð yfir í nýja kerfið. Aðgangsorð að nýja kerfinu eru þau sömu og að því gamla. Þeir sem hafa tínt lykilorði sínu geta sótt það á innskráningarsíðunni. Ef notendanafn (sem er oftast netfang) hefur breyst, hringið þá í Guðrúnu í síma 587 2580 eða sendið henni póst á gudrun@spara.is


Einfalt, skemmtilegt og fróðlegt

Leiðarljós við uppfærslu hugbúnaðarins var að gera hann sem aðgengilegastan og einfaldastan í notkun og í öðru lagi skemmtilegan en það verður að telja mikla áskorun að gera fjármál heimilisins að skemmtiefni en ég held að okkur hafi tekist það, í það minnsta að hefja leiðangurinn í þá átt. Í þriðja lagi stefndum við að því að gera kerfið fróðlegt svo að notendur fengju ekki bara upplýsingar um stöðu heimilisbókhaldsins (sem er trúlega ekkert sérstakt skemmtiefni) heldur leiðbeiningar um hvað sé hægt að gera til þess að snúa blaðinu við, fara úr mínus í plús, eða einfaldlega gera enn betur en hingað til.


Útgjaldstýring, veltukerfi, greiðslujöfnun og lánareiknir

Útgjaldstýring er hluti hugbúnaðarins, eins konar bókhaldskerfi sem sýnir ekki aðeins hver staðan er heldur einnig hvernig hún verður eða getur orðið í framtíðinni og hvaða leiðir er hagkvæmast að velja til þess að ná markmiðum sínum. Útgjaldastýringin leiðbeinir einnig um sparnaðarleiðir og sýnir hvernig sparnaðurinn muni geta þróast í framtíðinni (Þetta er skemmtilegasti parturinn og bráðnauðsynlegur fyrir þá sem vilja eignast einhverja peninga).

Veltukerfið er einstakur hugbúnaður sem flestir þekkja af afspurn en núna er hægt að kynnast því af eigin raun. Veltukerfið segir til um einföldustu og fljótvirkustu leiðina til þess að verða skuldlaus. En ekki nóg með það. Í nýju útgáfunni finnur veltukerfið út inn á hvaða lán er hægstæðast að greiða eingreiðslu annað hvort í þeim tilgangi að ná fram sem mestum sparnaði eða mestri lækkun á greiðslubyrði. Þá er hægt að setja öll verðtryggð lán í greiðslujöfnun og sjá hvaða áhrif hún hefur á greiðslur af láninu og höfuðstólinn og einnig er hægt að skoða hvaða áhrif greiðslujöfnunin hefur á veltugreiðslurnar (höfuðstólsgreiðslurnar).

Með lánareikninum er hægt að bera saman allar lánategundir; greiðslubyrðina, breytingar á höfuðstóli og eignamyndun mismunandi húsnæðislána. Lánareiknirinn svarar flestum spurningum þeirra sem ætla að taka lán eða eru að hugsa um skuldbreytingar. Lánareiknirinn verður opinn öllum þegar nýja vefsíðan fer í loftið en sjálft fjárhagskerfið er aðeins opið áskrifendum.


Kennsla á hugbúnaðinn – frítt fyrir áskrifendur

Þrátt fyrir að kerfið sé afar einfalt í notkun, þá veit ég af langri reynslu að það er alltaf erfitt að byrja. Reyndar er erfiðasti af öllu að koma sér af stað, það sem eftir kemur er nánast leikur einn. Einmitt þess vegna ætlar spara.is að bjóða öllum áskrifendum að heimilishugbúnaðinum upp á kennslustund í notkun hans. Við viljum fyrir alla muni að þið notið hugbúnaðinn vegna þess að við vitum að hann virkar. Kennslan og skráning í tímana verður auglýst sérstaklega í fréttabréfinu.


Uppfærslan er áskrifendum að kostnaðarlausu

Athugið að eldri áskrifendur fá uppfærsluna á búnaðinum frítt, það er að segja þeir greiða áfram óbreytt verð og þeir greiddu fyrir eldri hugbúnað.

Farið inn á nýja heimasíðu www.spara.is og skráið ykkur inn í fjárhagskerfið með notaendanafni ykkar og lykilorði. Ef þið munið það ekki getið þið fengið það sent í tölvupósti eða hringt í síma 587 2580. Þeir sem ekki eru enn orðnir áskrifendur að kerfinu ættu að gera það núna.

Góða helgi,
Ingólfur H. Ingólfsson


... þetta helst 2011

Á allt og fæ meira

Sparnaðarráð 1. desember

Hvað á Jóakim Aðalönd mikla peninga?

Eftirlaunaárin í fátækt án viðbótarlífeyrissparnaðar

Sparifélagið hf. leitar fjárfesta fyrir Sparibankann

Andabæjarhagfræði - fræðileg úttekt

Ný útgáfa af Eplum & appelsínum

Öll fréttabréf frá árinu 2006 á netinu

Sparibankinn gæti orðið fjórði stærsti bankinn!

Hækkun stýrivaxta var nauðsynleg

Annað fjármálahrun? - Ólíklegt

Hagfræði fátæktarinnar

Hvaða máli skiptir gjaldmiðillinn?

Íslömsk fjármálastarfsemi, vaxtabann og góðir viðskiptahættir

Vextir og fjárfestingar

Hærri laun gætu aukið hagvöxt

Stjórn og varastjórn Sparifélagsins hf

Hanna Björk bankastjóri Sparibankans

Auglýst eftir bankastjóra Sparibankans

Fjármagnseigendur til hjálpar

Dómurinn og gengisáhættan

Stór afsláttarsamningur við Orkuna

Skuldagreiðslusamfélagið (The Pay Back Society)

Úr mínus í plús á Akureyri með Atlantsolíu

Ólöglegt en siðlegt

Ný uppfærsla og frí kennsla á Epli & appelsínur

"Til hamingju, þrátt fyrir allt"

Hamingja og peningar

Stórviðburður í Háskólabíói 30. mars

Að greiða skuldir ríkisins með landsframleiðslu

Höfuðstóll og höfuðstólsgreiðslur

Álver og áhætta

Er það í eðli markaðarins að mistakast?

Almenningur í afleiðuviðskiptum með íbúðalán

Það eru útgjöldin sem skipta máli, ekki tekjurnar

Eru peningarnir að hverfa aftur úr hagkerfinu?

Lífeyrissjóðir í fyrirtækjarekstri

Verðtryggðir raunvextir hærri en óverðtryggðir í 30 ár!

Gull eða hlutabréf - veröld sem var?

Á hvaða leið er íslenska krónan?

Ást og peningar

Myntkörfulánin, biðin og hvað svo?

Endurreisn og viðskiptasiðferði

Verður önnur niðursveifla í vor?

Epli & appelsínur - fréttatilkynning

Er kreppunni lokið?

FED, skuldabyrði Bandaríkjanna og verðbólgan

Uppkaup ríkja og fjárfesta á ræktarlandi

Epli & appelsínur - hvað er það?

Nýtt fjárhagskerfi fyrir heimilið

Árið 2010 og skuldir ríkissjóðs

Varúð, verðtryggðir breytilegir vextir

Nýir skattar og neikvæðir verðtryggðir vextir

Sjálfvirk skuldaskrúfa

Fjármál heimilanna kt: 600603 - 2210     |    Vegmúli 2    |    108 Reykjavík    |    sími: 587 2580    |    fax: 578 2580    |    spara@spara.is    |