Lesa

Hanna Björk bankastjóri Sparibankans


Fréttatilkynning

Hanna Björk Ragnarsdóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sparifélagsins hf.

Sparifélagið hf. hefur um nokkurt skeið unnið að undirbúningi umsóknar um viðskiptabankaleyfi í kjölfar hlutafjárútboðs sem fyrirhugað er á komandi mánuðum. Að fengnu leyfi fyrir rekstri viðskiptabanka mun starf framkvæmdastjóra Sparifélagsins breytast í starf bankastjóra. Stefnt er að því að bankinn hefji starfsemi á síðari hluta ársins.

Nýi bankinn mun starfa undir heitinu Sparibankinn og byggja á hugmyndafræðinni um stýringu útgjalda og uppbyggingu sparnaðar og eigna. „Ég fagna því að við höfum fengið jafnöflugan og reyndan liðsmann til starfa og Hönnu Björk. Við höfum unnið hörðum höndum að því á síðustu mánuðum að leggja grunn að stofnun Sparibankans og er þetta mikilvægt skref á þeirri leið,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson, stjórnarformaður Sparifélagsins.

Hanna Björk er 47 ára viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfamiðlun og diplómaprófi í mannauðsstjórnun frá EHÍ.

Hanna Björk hefur m.a. starfað sem deildarstjóri tölvudeildar Sjúkrasamlags Reykjavíkur, yfirviðskiptafræðingur við áætlana- og upplýsingadeild og síðar verðbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, forstöðumaður reikningshalds hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar og sem forstöðumaður áætlana og greiningar á fjármálasviði Byr, síðar áhættustýringarsviði og gegndi því starfi fram á síðasta haust.
Hún hefur þegar hafið störf hjá Sparifélaginu.

Nánari upplýsingar veitir Ingólfur H. Ingólfsson, stjórnarformaður Sparifélagsins hf., í síma 587-2580.

... þetta helst 2011

Á allt og fæ meira

Sparnaðarráð 1. desember

Hvað á Jóakim Aðalönd mikla peninga?

Eftirlaunaárin í fátækt án viðbótarlífeyrissparnaðar

Sparifélagið hf. leitar fjárfesta fyrir Sparibankann

Andabæjarhagfræði - fræðileg úttekt

Ný útgáfa af Eplum & appelsínum

Öll fréttabréf frá árinu 2006 á netinu

Sparibankinn gæti orðið fjórði stærsti bankinn!

Hækkun stýrivaxta var nauðsynleg

Annað fjármálahrun? - Ólíklegt

Hagfræði fátæktarinnar

Hvaða máli skiptir gjaldmiðillinn?

Íslömsk fjármálastarfsemi, vaxtabann og góðir viðskiptahættir

Vextir og fjárfestingar

Hærri laun gætu aukið hagvöxt

Stjórn og varastjórn Sparifélagsins hf

Hanna Björk bankastjóri Sparibankans

Auglýst eftir bankastjóra Sparibankans

Fjármagnseigendur til hjálpar

Dómurinn og gengisáhættan

Stór afsláttarsamningur við Orkuna

Skuldagreiðslusamfélagið (The Pay Back Society)

Úr mínus í plús á Akureyri með Atlantsolíu

Ólöglegt en siðlegt

Ný uppfærsla og frí kennsla á Epli & appelsínur

"Til hamingju, þrátt fyrir allt"

Hamingja og peningar

Stórviðburður í Háskólabíói 30. mars

Að greiða skuldir ríkisins með landsframleiðslu

Höfuðstóll og höfuðstólsgreiðslur

Álver og áhætta

Er það í eðli markaðarins að mistakast?

Almenningur í afleiðuviðskiptum með íbúðalán

Það eru útgjöldin sem skipta máli, ekki tekjurnar

Eru peningarnir að hverfa aftur úr hagkerfinu?

Lífeyrissjóðir í fyrirtækjarekstri

Verðtryggðir raunvextir hærri en óverðtryggðir í 30 ár!

Gull eða hlutabréf - veröld sem var?

Á hvaða leið er íslenska krónan?

Ást og peningar

Myntkörfulánin, biðin og hvað svo?

Endurreisn og viðskiptasiðferði

Verður önnur niðursveifla í vor?

Epli & appelsínur - fréttatilkynning

Er kreppunni lokið?

FED, skuldabyrði Bandaríkjanna og verðbólgan

Uppkaup ríkja og fjárfesta á ræktarlandi

Epli & appelsínur - hvað er það?

Nýtt fjárhagskerfi fyrir heimilið

Árið 2010 og skuldir ríkissjóðs

Varúð, verðtryggðir breytilegir vextir

Nýir skattar og neikvæðir verðtryggðir vextir

Sjálfvirk skuldaskrúfa

Fjármál heimilanna kt: 600603 - 2210     |    Vegmúli 2    |    108 Reykjavík    |    sími: 587 2580    |    fax: 578 2580    |    spara@spara.is    |