Lesa

Ný uppfærsla og frí kennsla á Epli & appelsínur

Frí kennsla á fjárhagskerfið, Epli & appelsínur

Allir notendur fjárhagskerfisins fá fría kennslu í notkun þess. Næstu tvö námskeið verða haldin í Reykjavík og í Reykjanesbæ á þriðjudaginn 27. apríl. Skráið ykkur á www.spara.is eða með því að smella á krækjurnar hér fyrir neðan:

Reykjavík, Verslunarskóli Íslands, græna sal, þriðjudaginn 27. apríl kl 17:00 – 18:30
http://spara.is/Frinamskeid  

Reykjanesbæ, Ráin, þriðjudaginn 4. maí kl 17:00 – 18:30
http://spara.is/Frinamskeid/Keflavik

Nýtið ykkur þetta tækifæri til þess að læra á alla möguleika fjárhagskerfisins (og nýjustu útgáfuna), það á eftir að margborga sig. Athugið að námskeiðið er frítt – það er bara að skrá sig og mæta!

Nýjungar í fjárhagskerfinu, Eplum og appelsínum

Það bætist alltaf eitthvað nýtt við fjárhagskerfið sem gerir það bæði skemmtilegra og einfaldara í notkun. Helstu nýungarnar eru þessar:

1. Útgjöldin þín í samanburði við neyslukönnun Hagstofunnar
Hagstofa Íslands gerir reglulega kannanir á útgjöldum heimilanna er notaður sem grundvöll fyrir útreikningum á vísitölu neysluverðs. Hagstofan kannar útgjöldin hjá mismunandi fjölskyldugerðum – einstaklingum og hjónum með og án barna. Það má því segja að í könnun Hagstofnunar komi fram dæmigerð meðal neysla íslenskra heimila. Í Eplum og appelsínum getur þú borið saman þína neyslu við sambærilega fjölskyldu úr könnun Hagstofunnar og fengið góða mynd af því hvort þú ert að eyða meira eða minna í mat eða föt, í tómstundir eða menntun, í bílinn eða skemmtanir og svo framvegis. Þú sérð einnig á svipstundu hvort áætlun þín fyrir árið sýnir einhversstaðar óeðlileg frávik frá meðalfjölskyldunni.

Það getur verið að tekjur þínar séu hærri eða lægri en viðmiðunarhóps Hagstofunnar og þá leiðir krónusamanburðurinn kannski í ljós að þú eyðir of miklu í ferðalög eða of litlu í mat miðaða við samanburðarfjölskylduna. Til þess að leiðrétta þetta getur þú einfaldlega valið í Eplum og appelsínum að bera saman hlutfallslega neyslu og þá færðu út hárréttan samanburð.

2. Skráning útgjalda einfölduð
Í útgjaldaskráningunni er einfaldlega valið a milli skráningu tekna eða útgjalda og hugbúnaðurinn sér um að skipta útgjöldum á milli fastra- og breytilegra útgjalda. Þetta er mikil einföldun og hraðar alla skráningu og vinnslu.

3. Yfirlit yfir vexti og verðbólgu
Það hefur verið bætt við einni reiknivél í viðbót við gengisútreikningana. Núna er einnig hægt að skoða á myndrænan hátt breytingar á verðbólgu og vöxtum á verðtryggðum og óverðtryggðum skuldabréfum og á almennum sparisjóðsbókum allt frá árinu 1981. Þetta er afar forvitnilegur samanburður svo ekki sé meira sagt.

4. Lánareiknir og eignamyndun
Í lánareikninum er hægt að skoða allar tegundir lána- verðtryggt og óverðtryggt, jafngreiðslulán og afborgunarlán - og bera saman greiðslubyrði, heildarkostnað, lántökukostnað og eignamyndun. Öll þessi atriði er mér vitanlega hvergi annarsstaðar hægt að skoða og bera saman en þau eiga að svara öllum spurningum þeirra sem eru að hugsa um að taka lán eða skuldbreyta.

5. Nýt útlit
Myndirnar og gröfin í reiknivélunum, lánareikninum og í lífeyrisútreikningunum eru flottari og skýrari og hægt er að kalla fram mjög nákvæmar upplýsingar ef músinni er rennt yfir myndirnar.

Kær kveðja,
Ingólfur H. Ingólfsson

... þetta helst 2011

Á allt og fæ meira

Sparnaðarráð 1. desember

Hvað á Jóakim Aðalönd mikla peninga?

Eftirlaunaárin í fátækt án viðbótarlífeyrissparnaðar

Sparifélagið hf. leitar fjárfesta fyrir Sparibankann

Andabæjarhagfræði - fræðileg úttekt

Ný útgáfa af Eplum & appelsínum

Öll fréttabréf frá árinu 2006 á netinu

Sparibankinn gæti orðið fjórði stærsti bankinn!

Hækkun stýrivaxta var nauðsynleg

Annað fjármálahrun? - Ólíklegt

Hagfræði fátæktarinnar

Hvaða máli skiptir gjaldmiðillinn?

Íslömsk fjármálastarfsemi, vaxtabann og góðir viðskiptahættir

Vextir og fjárfestingar

Hærri laun gætu aukið hagvöxt

Stjórn og varastjórn Sparifélagsins hf

Hanna Björk bankastjóri Sparibankans

Auglýst eftir bankastjóra Sparibankans

Fjármagnseigendur til hjálpar

Dómurinn og gengisáhættan

Stór afsláttarsamningur við Orkuna

Skuldagreiðslusamfélagið (The Pay Back Society)

Úr mínus í plús á Akureyri með Atlantsolíu

Ólöglegt en siðlegt

Ný uppfærsla og frí kennsla á Epli & appelsínur

"Til hamingju, þrátt fyrir allt"

Hamingja og peningar

Stórviðburður í Háskólabíói 30. mars

Að greiða skuldir ríkisins með landsframleiðslu

Höfuðstóll og höfuðstólsgreiðslur

Álver og áhætta

Er það í eðli markaðarins að mistakast?

Almenningur í afleiðuviðskiptum með íbúðalán

Það eru útgjöldin sem skipta máli, ekki tekjurnar

Eru peningarnir að hverfa aftur úr hagkerfinu?

Lífeyrissjóðir í fyrirtækjarekstri

Verðtryggðir raunvextir hærri en óverðtryggðir í 30 ár!

Gull eða hlutabréf - veröld sem var?

Á hvaða leið er íslenska krónan?

Ást og peningar

Myntkörfulánin, biðin og hvað svo?

Endurreisn og viðskiptasiðferði

Verður önnur niðursveifla í vor?

Epli & appelsínur - fréttatilkynning

Er kreppunni lokið?

FED, skuldabyrði Bandaríkjanna og verðbólgan

Uppkaup ríkja og fjárfesta á ræktarlandi

Epli & appelsínur - hvað er það?

Nýtt fjárhagskerfi fyrir heimilið

Árið 2010 og skuldir ríkissjóðs

Varúð, verðtryggðir breytilegir vextir

Nýir skattar og neikvæðir verðtryggðir vextir

Sjálfvirk skuldaskrúfa

Fjármál heimilanna kt: 600603 - 2210     |    Vegmúli 2    |    108 Reykjavík    |    sími: 587 2580    |    fax: 578 2580    |    spara@spara.is    |