Lesa

Epli & appelsínur - fréttatilkynning

Hvað eru Epli & appelsínur?
Epli & appelsínur er nýtt fjárhagskerfi fyrir heimilin frá spara.is þar sem notuð er nýjasta tækni og reynsla af notkun eldri fjárhagskerfa spara.is til þess að gera stýringu á fjármálum heimilisins einfalda og skemmtilega.

Ný hugsun í fjármálum
Epli & appelsínur er ný leið í fjármálum sem byggir á kenningum Ingólfs H. Ingólfssonar um bestu mögulega nýtingu tekna heimilisins, sem hann hefur kynnt á námskeiðunum “Úr mínus í plús” og í bók sinni “Þú átt nóg af peningum – þú þarft bara að finna þá”.

Að velja bæði eplið og appelsínuna
Hvers vegna þetta skrítna nafn, Epli & appelsínur? Aðferðir Ingólfs H. Ingólfssonar við peningastjórnun víkja í mörgu frá hefðbundnum hugmyndum fjármálafræðinnar um að lífið sé eins og jafna og því megi ekki bera saman jafn ólíka hluti og epli og appelsínur því að þá verði útkoman röng. Ingólfur gengur út frá því að manneskjan sé breysk og allt annað en hagsýn þegar kemur að fjármálum; lífið gengur sjaldnast upp eins og ætlað var og að lokum deyr maður. Hvers vegna að bíða með að spara á meðan verið er að greiða skuldir þegar hægt er að gera hvort tveggja á sama tíma? Hvers vegna að bíða með að hafa ánægju af peningunum þangað til kauphækkunin kemur þegar hægt er að njóta þeirra strax? Hvers vegna að taka aðeins eplið þegar hægt er að velja hvort tveggja, eplið og appelsínuna?

Einfalt, fróðlegt og skemmtilegt
Það er óhjákvæmilegt að stýra því hvert peningarnir fara ef ná á árangri í fjármálum. Helsti galli á bókhaldskerfum fyrir heimilin er hversu lítið þau eru notuð, líklega vegna þess að gera lítið annað en að segja það sem flestir vita – að allt sé í steik. Epli & appelsínur upplýsir ekki bara um fjárhagsstöðuna heldur er einnig leiðbeinandi um stýringu fjármuna svo að markmiðin náist og draumarnir geti ræst. Epli & appelsínur eru einfalt, fróðlegt og síðast en ekki síst skemmtilegt stjórntæki fyrir fjármál heimilisins.

Epli & appelsínur er hægt að skoða á nýrri vefsíðu www.spara.is

... þetta helst 2011

Á allt og fæ meira

Sparnaðarráð 1. desember

Hvað á Jóakim Aðalönd mikla peninga?

Eftirlaunaárin í fátækt án viðbótarlífeyrissparnaðar

Sparifélagið hf. leitar fjárfesta fyrir Sparibankann

Andabæjarhagfræði - fræðileg úttekt

Ný útgáfa af Eplum & appelsínum

Öll fréttabréf frá árinu 2006 á netinu

Sparibankinn gæti orðið fjórði stærsti bankinn!

Hækkun stýrivaxta var nauðsynleg

Annað fjármálahrun? - Ólíklegt

Hagfræði fátæktarinnar

Hvaða máli skiptir gjaldmiðillinn?

Íslömsk fjármálastarfsemi, vaxtabann og góðir viðskiptahættir

Vextir og fjárfestingar

Hærri laun gætu aukið hagvöxt

Stjórn og varastjórn Sparifélagsins hf

Hanna Björk bankastjóri Sparibankans

Auglýst eftir bankastjóra Sparibankans

Fjármagnseigendur til hjálpar

Dómurinn og gengisáhættan

Stór afsláttarsamningur við Orkuna

Skuldagreiðslusamfélagið (The Pay Back Society)

Úr mínus í plús á Akureyri með Atlantsolíu

Ólöglegt en siðlegt

Ný uppfærsla og frí kennsla á Epli & appelsínur

"Til hamingju, þrátt fyrir allt"

Hamingja og peningar

Stórviðburður í Háskólabíói 30. mars

Að greiða skuldir ríkisins með landsframleiðslu

Höfuðstóll og höfuðstólsgreiðslur

Álver og áhætta

Er það í eðli markaðarins að mistakast?

Almenningur í afleiðuviðskiptum með íbúðalán

Það eru útgjöldin sem skipta máli, ekki tekjurnar

Eru peningarnir að hverfa aftur úr hagkerfinu?

Lífeyrissjóðir í fyrirtækjarekstri

Verðtryggðir raunvextir hærri en óverðtryggðir í 30 ár!

Gull eða hlutabréf - veröld sem var?

Á hvaða leið er íslenska krónan?

Ást og peningar

Myntkörfulánin, biðin og hvað svo?

Endurreisn og viðskiptasiðferði

Verður önnur niðursveifla í vor?

Epli & appelsínur - fréttatilkynning

Er kreppunni lokið?

FED, skuldabyrði Bandaríkjanna og verðbólgan

Uppkaup ríkja og fjárfesta á ræktarlandi

Epli & appelsínur - hvað er það?

Nýtt fjárhagskerfi fyrir heimilið

Árið 2010 og skuldir ríkissjóðs

Varúð, verðtryggðir breytilegir vextir

Nýir skattar og neikvæðir verðtryggðir vextir

Sjálfvirk skuldaskrúfa

Fjármál heimilanna kt: 600603 - 2210     |    Vegmúli 2    |    108 Reykjavík    |    sími: 587 2580    |    fax: 578 2580    |    spara@spara.is    |