Þá er komið að því að undirbúningsfélagið að stofnun Sparibankans auglýsir eftir bankastjóra. Auglýsingin birtist í Viðskiptablaðinu í dag, fimmtudaginn 2. desember, og mun einnig birtast í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu á laugardaginn. Þetta eru tímamót í undirbúningi að stofnun Sparibankans. Eftir að verðandi bankastjóri hefur verið ráðinn verður ítarleg útboðslýsing til almennrar hlutafjársöfnunar lögð fyrir Fjármálaeftirlitið. Að fegnu samþykki FME verður farið í hlutafjárútboð þar sem almenningi jafnt sem stofnfjárfestum verður boðið að koma að stofnun bankans. Safnað verður einum milljarði í hlutafé en lagmarkskröfur til viðskiptabanka eru 5 milljónir evra. Að lokinni hlutafjársöfnun verður farið í formlegt umsóknarferli sem getur tekið allt að 12 mánuði.
Það er ekki hlaupið að því að stofna nýjan viðskiptabanka - sem betur fer vil ég meina. Sparibankinn ætlar að starfa næstu 300 árin, að minnsta kosti, og því þarf að vanda vel til upphafsins. Ég hef oft verið spurður að því, hversvegna við keyptum ekki einfaldlega starfandi fjármálafyrirtæki eða sparisjóð sem væri með rekstrarleyfi í stað þess að sækja um frá byrjun. Við könnuðum alla þessa möguleika og komumst að raun um að best og öruggast væri að fara “erfiðu” leiðina. Sparibankanum er ekki bara ætlað að verða nýr viðskiptabanki heldur byggist hann á nýstárlegu viðskiptabankamódeli og það hefði líklega orðið framkvæmd þess til trafala að þurfa að byrja á því að taka til í gamla kerfinu og moka út. Það er einnig mat okkar í undirbúningsfélaginu að það sé mikið öryggi fólgið í því fyrir bankann að fara í gegnum nálarauga Fjármálaeftirlitsins og standast kröfur þeirra frá fyrsta degi. Það geri bara 300 ára markmið bankans enn raunhæfara en ella.
Capacent hefur unnið útboðslýsinguna með Arnari Frey, verkefnisstjóra, og mun sjá um hlutafjársöfnunina fyrir hönd Sparifélagsins hf. Okkar helstu ráðgjafar eru endurskoðendur hjá PricewaterhouseCoopers, starfsmenn SKÝRR, lögmenn Nordic Leagal, sérfræðingar í áhættustýringu hjá ráðgjafarfyrirtækinu Summu og sá gamalreyndi bankamaður Jón Þórisson.
Við eigum enn langa og erfiða ferð fyrir höndum áður en kemur að viðskiptabankaleyfinu. En með öflugan bankastjóra í fararbroddi komumst við vonandi á leiðarenda fyrir lok ársins 2011.
Kær kveðja,
Ingólfur H. Ingólfsson